Fotbolti.net
21.06.26 - 17:26
Brynjar Ingi Erluson

Sjálfsmarkametið í hættu

Marc Cucurella átti skotið sem bjó til áttunda sjálfsmark mótsins

Marc Cucurella átti skotið sem bjó til áttunda sjálfsmark mótsins

Canon

Mynd: EPA

Áttunda sjálfsmarkið á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó leit dagsins ljós þegar Spánverjar komust í 4-0 gegn Sádi-Arabíu í dag.
Boltinn barst á fjærstöngina þar sem Marc Cucurella átti skot sem Mohammed Al-Owais varði í Hassan Altambakti. Þaðan lak boltinn í netið.

Þetta var áttunda sjálfsmarkið á mótinu og sjálfsmarkamet HM í stórhættu. Metið er frá HM 2018 í Rússlandi, þar sem tólf sjálfsmörk voru skoruð.

Það þótti merkilegt á sínum tíma enda var gamla metið gjörsamlega sprengt. Nú er hins vegar aðeins tímaspursmál hvort metið verði jafnað og jafnvel slegið á þessu móti.

Hægt er að sjá sjálfsmark dagsins hér fyrir neðan.

Sjáðu sjálfsmarkið hér
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.