Badu sáttur: Þetta var okkar besta frammistaða í sumar


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Vestri tóku á móti Aftureldingu á Ísafirði fyrr í dag. Leikurinn var jafn framan að en í byrjun seinni hálfleiks sóttu Afturelding mikið en Vestri vörðust vel og skoruðu mark. Eftir það lágu Afturelding á Vestra en þeir héldu út og bættu við marki í uppbótatíma, lokatölur voru 2-0.
Fótbolti.net ræddi við Daniel Badu þjálfara Vestra eftir leikinn.
„Ég er mjög sáttur með liðið og frammistöðuna og þetta var okkar besta frammistaða á tímabilinu". Sagði Daniel Badu þjálfari Vestra eftir leik.
Fyrri hálfleikurinn var rólegur og liðin sköpuðu lítið að færum, hvað fannst þér um fyrri hálfleikinn?
„Við reyndum að vera undir stjórn bæði varnarlega og sóknarlega, Afturelding er lið með mikil gæði á boltanum, með tvo góða framherja og varnarlega spiluðum við nákvæmlega eins og við vildum gegn þeim".
Afturelding komu sterkir út í seinni hálfleikinn og sóttu meira en Vestri til að byrja með. Vestri skora síðan fyrsta markið sem breytti leiknum, hvað fannst þér um seinni hálfleikinn?
„Við byrjuðum hann vel og við vorum að finna svæði á köntunum eins og við vildum gera. Það var sanngjarnt að mínu mati að við skoruðum fyrsta markið".
Eftir fyrsta mark Vestra sóttu Afturelding mjög hart að marki Vestra og þeir féllu djúpt niður.
„Við vorum að verjast of mikið fannst mér, en Afturelding létu okkur gera það en við vorum mjög ákveðnir í okkar teig og Marvin bjargaði okkur einu sinni. Ég var mjög glaður með liðið varnarlega í dag".
Vestri hefur unnið fjóra leiki af síðustu fimm í deildinni, ertu sáttur með síðustu leiki liðsins?
„Ég er bara að horfa á þetta einn leik í einu, við erum lið sem er að bæta sig með hverjum leik og ég er ekki hissa að við erum betri núna en við vorum í byrjun móts. Ég er bjartsýnn með framhaldið, ef við höldum áfram á sömu braut".
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.




