Gagnrýnir þögnina - „Við höfum verið beittir óréttlæti“

Amir Ghalenoei, þjálfari Írans

Mynd: EPA

Íranska landsliðið

Mynd: EPA

Amir Ghalenoei, þjálfari Írans

Mynd: EPA
Amir Ghalenoei, þjálfar íranska landsliðsins, segir liðið hafa verið beitt miklu óréttlæti á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó, og að allir kollegar hafi litið undan.
Landslið Írans hefur þurft að glíma við mikla erfiðleika á heimsmeistaramótinu vegna stríðs Bandaríkjanna og Írans og ferðatakmarkana í Bandaríkjunum.
Bækistöðvar Írana eru í Tijuana í Mexíkó og liðið hefur því þurft að ferðast yfir landamærin fyrir leiki sína í Bandaríkjunum. Ghalenoei segir liðið hafa fengið aðra meðferð en aðrar þjóðir á mótinu.
Ghalenoei segir mótshaldara hafa brugðist Írönum og að framkoman gagnvart liðinu sé ekki réttlætanleg.
„Við höfum þurft að takast á við margar áskoranir, sérstaklega utan vallar. Ég spurði hina 47 þjálfarana einnar spurningar en enginn svaraði. Við höfum ekki fengið neinn stuðning og engin viðbrögð frá þjálfurunum. Mér skilst þó að hinn virðulegi þjálfari Belgíu hafi sagt á sínum blaðamannafundi að við værum hér til að spila fótbolta en ekki blanda okkur í pólitík.“
„Kvartanir okkar snúa að framkomu mótshaldara gagnvart okkur. Ég hef ekki heyrt í öðrum þjálfurum; þeir eru uppteknir af sínum eigin liðum og við höfum engan stuðning fengið. Ég hefði sjálfur gert það.“
„FIFA hringdi í mig og spurði: 'Eruð þið tilbúnir í flug klukkan 18:00?' Ég sagðist vera til í það en við biðum og biðum. Við biðum til klukkan 19:00 en ekkert gerðist. Svo var hringt aftur og okkur sagt að það gengi ekki upp. Þetta hefur andleg áhrif á okkur og mig sem þjálfara. Ég veit að FIFA er að reyna sitt besta og ég þakka þeim fyrir það, en það þýðir ekki að þetta hafi tekist vel.“
„Það virðist sem þeir ætli nú að leyfa okkur að fara fyrr til Seattle. Ég vildi bara óska þess að þeir hefðu gert það fyrir fyrstu tvo leikina líka og leyft okkur að koma tveimur vikum fyrir fyrsta leik, þannig að við hefðum getað undirbúið okkur við ákjósanlegar aðstæður. Þeir rændu okkur því tækifæri.“
„Ef þeir geta allt í einu gert þetta núna, af hverju var það þá ekki hægt fyrir fyrsta leikinn eða þennan leik? Við höfum minna en átján klukkutíma til að undirbúa okkur fyrir næsta leik. Þetta er algert óréttlæti.“
„Ég vona að heimurinn nái friði og að svona framkoma festist ekki í sessi á heimsmeistaramótum,“ sagði Ghalenoei.
Íran mætir Belgíu á Los Angeles-leikvanginum klukkan 19:00 í kvöld í öðrum leik beggja liða í G-riðli. Íran er með eitt stig eftir 2-2 jafntefli gegn Nýja-Sjálandi í fyrstu umferðinni.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!