Doku yfirgefur mögulega herbúðir Belga - Harðlega gagnrýndur

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Belgíski vængmaðurinn Jeremy Doku hefur verið gagnrýndur fyrir að segjast vilja yfirgefa herbúðir Belgíu á HM til að vera með konu sinni þegar hún fæðir fyrsta barnið þeirra.
Shireen, eiginkona Doku, á að fæða í annarri vikunni í júlí og hann ætlar að fara heim jafnvel þótt Belgar séu enn á mótinu, þetta yrði í kringum átta liða úrslitin.
„Þetta er fyrsta barnið mitt svo ég vil klárlega vera þarna. Ef þú spyrð mig hvað ég vil er svarið að enginn vill missa af fæðingu fyrsta barnsins. Ég veit að sambandið styður leikmenn og skilur aðstæður. Við sjáum til hvað við getum gert," sagði Doku.
France Pierron hjá L'Equipe gagnrýndi þessa ákvörðun harkalega.
„HM færir manni mikla hamingju. Það eru hundruðir fótboltamanna sem myndu drepa fyrir að vera í þínum sporum. Þetta gæti aldrei gerst aftur. Þetta er æskudraumur, þú vilt samt ganga í burtu frá öllu til að vera viðstaddur fæðingu barnsins þíns, ógeðslegt, afsakið orðbragðið, þar sem pabbinn er algjörlega tilgangslaus," sagði Pierron.
Hún baðst síðan afsökunar á ummælum sínum síðar.
„Ég var að tjá persónulega skoðun í samhengi við umræður. Þessar athugasemdir eru eingöngu mínar eigin og endurspegla á engan hátt sameiginlega afstöðu. Ég skil að þær kunna að hafa hneykslað, móðgað eða sært sum ykkar og ég biðst afsökunar. Ætlun mín var aldrei að gera lítið úr stöðu eða hlutverki feðra gagnvart mökum sínum og börnum.“

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!