Maður dagsins á HM - Frá verksmiðjunni yfir í HM hetju

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Hinn 29 ára gamli Deniz Undav kom inn á hjá Þjóðverjum og skoraði bæði mörkin í 2-1 endurkomusigri á Fílabeinsströndinni.

TENGT EFNI
HM: Ótrúleg innkoma hjá Undav sem skaut Þjóðverjum áfram
Hann hefur nú skorað þrjú mörk og lagt upp tvö í fyrstu tveimur leikjunum sem varamaður. Aðeins Roger Milla hefur náð jafn góðum árangri á HM frá 1966 en hann gerði það árið 1990.
Einu sinni var HM mjög fjarlægur draumur fyrir Undav en Werder Bremen hafnaði honum þegar hann var 14 ára. Hann var með 120 pund í vikulaun 17 ára gamall. Hann var hálfatvinnumaður í þýsku 4. deildinni á meðan hann vann átta tíma vaktir í verksmiðju.
„Þegar Werder tjáði mér að ég ætti ekki framtíðina fyrir mér hjá þeim 14 ára gamall því ég var of lítill, það braut í mér hjartað. Ég hætti ekki að trúa. Ég fór að heiman 17 ára og samdi við Havelse í 4. deild þar sem ég spilaði og æfði auk þess að vinna fulla vinnu við að stjórna leysigeislavél í verksmiðju," sagði Undav.