Lengjudeildin: Vestri með sterkan sigur á Aftureldingu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Vestri 2 - 0 Afturelding
1-0 Emmanuel Agyeman Duah ('72 )
2-0 Breki Þór Hermannsson ('93 )
Lestu um leikinn
1-0 Emmanuel Agyeman Duah ('72 )
2-0 Breki Þór Hermannsson ('93 )
Lestu um leikinn
Vestri vann frábæran sigur á Aftureldingu á Ísafirði í dag. Fyrri hálfleikurinn var bragðdaufur. Fyrsta skotið átti Elmar Atli Garðarson í upphafi seinni hálfleiks en Arnar Daði Jóhannesson í marki Aftureldingar varði.
Vestri hélt áfram að sækja og það skilaði sér með marki á 72. mínútu. Breki Þór Hermannsson fékk boltann inn á teignum og hann sendi á Emmanuel Duah sem skoraði með góðu skoti.
Afturelding fékk góð tækifæri undir lokin til að jafna metin en Breki Þór innsiglaði sigur Vestra með marki í uppbótatíma. Afturelding var komið með marga menn í sóknina, Breki komst einn í gegn og skoraði.
Vestri stökk upp fyrir Aftureldingu í 2. sæti með 19 stig en Afturelding er í 4. sæti með 16 stig. Afturelding hefur spilað tveimur leikjum minna en Vestri.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Þróttur R. | 9 | +11 | 19 |
| 2 | Vestri | 11 | +2 | 19 |
| 3 | Fylkir | 9 | +3 | 18 |
| 4 | Afturelding | 9 | +6 | 16 |
| 5 | Leiknir R. | 10 | +1 | 15 |
| 6 | HK | 9 | 0 | 15 |
| 7 | Njarðvík | 10 | +4 | 14 |
| 8 | Grótta | 8 | -2 | 12 |
| 9 | ÍR | 9 | -5 | 10 |
| 10 | Grindavík | 8 | -3 | 7 |
| 11 | Ægir | 9 | -6 | 7 |
| 12 | Völsungur | 9 | -11 | 5 |