Fotbolti.net
21.06.26 - 16:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu mörkin: Yamal skoraði sitt fyrsta mark á HM - Oyarzabal heitur

Sjáðu mörkin: Yamal skoraði sitt fyrsta mark á HM - Oyarzabal heitur
Canon

Mynd: EPA

Spánn hóf leik á HM gegn Grænhöfðaeyjum þann 15 júní og gerði óvænt markalaust jafntefli.

Það er komið að fyrri vatnspásunni í leik Spánar og Sádi-Arabíu þar sem Spánverjar eru með 3-0 forystu.
Lamine Yamal er í byrjunarliðinu en hann var tæpur fyrir fyrri leikinn og gat ekki byrjað. Hann kom Spáni yfir í dag eftir laglegan undirbúning Mikel Oyarzabal og Alex Baena.

Oyarzabal bætti síðan öðru markinu við eftir darraðadans inn á teignum. Hann skoraði síðan þriðja markið þegar Dani Olmo skallaði boltann til hans í markteignum.

Sjáðu markið hjá Yamal hér
Fyrra mark Oyarzabal
Seinna mark Oyarzabal
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.