21.06.26
Leið Íslands á HM
EFTIR ÍVAR BJÖRGVINSSON
Þar sem það eru rétt rúm átta ár liðin frá eina stigi Íslands í sögu HM, sem kom gegn engum öðrum en Messi og félögum í Argentínu, er tilvalið að rifja upp leið Íslands á HM. Flestir muna vel eftir HM í Rússlandi þar sem við Íslendingar vorum meðal þjóða sem tóku þátt en hvernig var leið okkar á mótið?
Lars Lagerback sagði skilið við liðið eftir stórkostlegan árangur á sínum tíma með liðið og þá var komið að Heimi einum að láta ljós sitt skína. Hann átti heldur betur eftir skrifa söguna og gefa íslensku þjóðinni svo mikið. Við skulum rifja upp hvernig stærsta afrek í sögu íslenskra íþrótta var framkvæmt.
Tveimur mánuðum eftir leik Íslands og Frakklands í 8-liða úrslitum EM 2016 hófst undankeppnin fyrir HM 2018 og beið okkar erfiður riðill þar sem aðeins efsta sæti tryggði sæti í lokakeppnina í Rússlandi en annað sæti gaf umspilsmöguleika. Ísland var í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið var í riðlana um sumarið 2015 og fengu erfiðan drátt ef horft er til Úkraínu í styrkleikaflokki þrjú og Tyrklands í styrkleikaflokki fjögur. Riðillinn var sá eini sem var með fjögur lið á lista yfir efstu 30 löndin á styrkleikalista FIFA. Riðillinn var eftirfarandi: Króatía (14. sæti), Tyrkland (21. sæti), Ísland (27. sæti), Úkranía (29. sæti), Finnland (84. sæti) og Kósóvó sem voru í fyrsta sinn með landslið í undankeppni stórmóts. var ljóst að erfitt verkefni biði Heimis Hallgrímssonar, sem var nýorðinn aðalþjálfari liðsins án Lars Lagerbacks sér við hlið.