Fotbolti.net
21.06.26 - 18:02
Brynjar Ingi Erluson

HM: Algerir yfirburðir Evrópumeistaranna

Mikel Oyarzabal skoraði tvö og lagði upp eitt

Mikel Oyarzabal skoraði tvö og lagði upp eitt

Canon

Mynd: EPA

Spánn 4 - 0 Sádi-Arabía
1-0 Lamine Yamal ('10 )
2-0 Mikel Oyarzabal ('21 )
3-0 Mikel Oyarzabal ('24 )
4-0 Hassan Tambakti ('49 , sjálfsmark)
Evrópumeistarar Spánar sýndu loksins tennurnar þegar þeir unnu öruggan 4-0 sigur á Sádi-Arabíu í H-riðli heimsmeistaramótsins á Mercedes-Benz leikvanginum í Atlanta í Georgíu í dag.

Spánverjar voru svekktir eftir markalaust jafntefli gegn Grænhöfðaeyjum í fyrstu umferðinni en bættu svo sannarlega fyrir það með fjögurra marka sýningu.

Leikurinn var í raun búinn eftir 25 mínútur. Lamine Yamal, sem hefur verið að jafna sig af meiðslum, byrjaði sinn fyrsta leik á mótinu og var aðeins tíu mínútur að koma boltanum í netið.

Mikel Oyarzabal átti þá laglega sendingu frá vinstri á fjærstöngina þar sem Yamal renndi sér í boltann og skoraði sitt fyrsta mark á heimsmeistaramóti.

Oyarzabal bætti svo sjálfur við tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla. Fyrra markið kom eftir hornspyrnu þar sem Sádarnir áttu í miklum vandræðum með að koma boltanum frá og Oyarzabal refsaði þeim vinstra megin í teignum.

Seinna mark hans kom eftir frábæra sókn. Pedro Porro sendi boltann fyrir á Marc Cucurella sem lagði hann fyrir Dani Olmo. Hann skallaði boltann á fjærstöngina þar sem Oyarzabal kláraði af öryggi.

Oyarzabal hefur verið sjóðheitur með spænska landsliðinu undanfarin ár og komið að 21 marki í síðustu þrettán landsleikjum.

Hann hefði getað fullkomnað þrennuna á 35. mínútu þegar Mohammed Al-Owais, markvörður Sádi-Arabíu, átti skelfilega sendingu frá marki beint á Oyarzabal. Spænski framherjinn lét vaða en boltinn fór í slána og yfir.

Spánverjar hefðu hæglega getað bætt við fyrir hlé en létu þrjú mörk duga í fyrri hálfleik.

Oyarzabal og Yamal voru báðir teknir af velli í hálfleik. Luis de la Fuente, þjálfari Spánar, var greinilega sáttur við stöðuna og vildi stýra álagi lykilmanna sinna.

Spánverjar bættu við fjórða markinu strax í upphafi síðari hálfleiks. Marc Cucurella átti þá skot sem Al-Owais varði í Hassan Altambakti og þaðan fór boltinn í netið. Þetta var áttunda sjálfsmark mótsins.

Spænska liðið gaf aðeins eftir þegar leið á leikinn en skapaði sér samt nokkur góð færi. Ferran Torres átti skot rétt framhjá og Al-Owais þurfti einnig að verja þegar boltinn fór af varnarmanni og stefndi í hornið eftir fyrirgjöf.

Sádarnir náðu aldrei að skapa sér neitt af viti og var þetta því nokkuð þægilegt fyrir Spánverja.

Fagmannleg frammistaða hjá Spánverjum sem voru með gríðarlega yfirburði frá fyrstu mínútu. Þeir eru komnir með fjögur stig á toppi H-riðils en Sádi-Arabía er áfram með eitt stig og þarf sigur gegn Grænhöfðaeyjum í lokaumferðinni til að eiga raunhæfa von um að komast áfram.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Tambakti gerði áttunda sjálfsmark mótsins

Tambakti gerði áttunda sjálfsmark mótsins

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.