Fotbolti.net
21.06.26 - 15:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lélegt gras kom Saliba mikið á óvart

Lélegt gras kom Saliba mikið á óvart
Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

William Saliba, leikmaður franska landsliðsins, var alls ekki hrifinn af aðstæðum á MetLife vellinum í New Jersey þegar Frakkland vann Senegal í fyrstu umferð riðlakeppninnar á HM.
Hann lék allan leikinn en honum fannst grasið lélegt.

„Ég verð að viðurkenna að ég var hissa á ástandinu á grasinu fyrir fyrsta leikinn. Það er ljóst að þetta var gervigras og var mjög hart. Þegar við erum mættir getum við ekkert gert, við verðum að spila og völlurinn er eins fyrir bæði lið," sagði Saliba.

Þess má geta að úrslitaleikurinn mun fara fram á MetLife vellinum.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.