Fotbolti.net
01.07.17 - 16:15
Lilja Dögg Valþórsdóttir

Óli Guðbjörns: Yfirburðirnir í seinni hálfleik réðu þessu

Auglýsing
Ólafur útilokar ekki að liðið muni sækja sér liðsauka í glugganum fyrir komandi átök hér heima og í Evrópukeppni.

Ólafur útilokar ekki að liðið muni sækja sér liðsauka í glugganum fyrir komandi átök hér heima og í Evrópukeppni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
<i>“Þetta var svona brösuglegt framan af. Þær komust náttúrulega yfir og við jöfnuðum í næstu sókn. Fyrri hálfleikurinn var aðeins erfiður en svo fannst mér við koma sterk inn í seinni og eiga leikinn og klára þetta með stæl,”</i> sagði Ólafur Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir stóran sigur á liði KR í Vesturbænum í dag.
KR liðið lokaði svæðum vel í fyrri hálfleiknum sem gerði Stjörnunni erfitt fyrir. Í seinni hálfleiknum náði Stjarnan þó betri tökum á leiknum og þá var þetta kannski aldrei spurning eða hvað?

“Þær lokuðu vel á þetta í fyrri hálfleik og við hefðum getað spilað þetta aðeins skynsamlegra. En það kom svo bara. Við fórum yfir þetta í hálfleik og stelpurnar leystu þetta vel í seinni hálfleik. Við hefðum getað skorað fleiri mörk en þær fengu ágætis upphlaup líka þannig að þetta var þannig séð bara skemmtilegur leikur en ég held að yfirburðirnir í seinni hálfleik hafi ráðið þessu.\"

Hvernig hyggst Ólafur nýta EM fríið?

“Bara vel. Við bara æfum og æfum og æfum og æfum meira og tökum svo smá frí þannig að leikmenn geti farið út og kíkt á EM og séð þar 2 leiki ef þær vilja. Þær fá viku þar. Og svo höldum við bara áfram að æfa. Við þurfum bara að halda fólkinu á tánum. Þetta er bara eins og lítið undirbúningstímabil. En það er stífur mánuður hjá okkur með bikar og Evrópukeppni framundan í ágúst þannig að við þurfum að vera vel undirbúin.”

“Núna setjumst við niður og skoðum málin. Förum yfir planið sem er framundan. Við höfum látið það allt bíða þangað til núna. Það er ekkert þannig á prjónunum en við sjáum bara hvað gerist,” segir Ólafur í lokin þegar hann er spurður útí það hvort að Stjarnan hyggist leita sér liðsstyrks í félagsskiptaglugganum fyrir komandi átök.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.