Fotbolti.net
01.07.20 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Mikil mistök að blása frönsku deildina af

Jean-Michel Aulas.

Jean-Michel Aulas.

Canon

Mynd: Getty Images

Jean-Michel Aulas, forseti Lyon, segir að það hafi verið mikil mistök hjá forráðamönnum frönsku úrvalsdeildarinnar að blása deildina af í apríl síðastliðnum.

PSG voru krýndir meistarar og Toulouse og Amiens voru send niður í B-deildina.
Keppni í úrvalsdeildunum í Þýskalandi, Spáni, Ítalíu og Englandi hófst á ný í maí og júní og Aulas hefði viljað sjá það sama í Frakklandi.

„Þetta eru mikil mistök. Fyrst því að landið þarf á fótbolta að halda og að horfa á fótbolta. Núna þurfum við að horfa á fótbolta í öðrum löndum," sagði Aulas.

„Fryst og fremst eru þetta dramatískir tímar í franska fótboltanum sem munu hafa mikil áhrif á fjárhaginn."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.