Aston Villa fær Tielemans á frjálsri sölu (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA
Aston Villa er búið að ganga frá félagsskiptum belgíska landsliðsmannsins Youri Tielemans sem kemur á frjálsri sölu frá Leicester City.
Tielemans er öflugur miðjumaður sem hefur verið eftirsóttur af stærstu liðum enska boltans í gegnum tíðina.
Hann féll niður um deild með Leicester á nýliðnu tímabili og er búinn að skipta yfir til Villa þar sem hann mun spila undir stjórn Unai Emery.
Tielemans er 26 ára gamall en er hokinn reynslu, með 60 landsleiki að baki fyrir Belgíu og 195 leiki á fjóru og hálfu ári hjá Leicester.
Hann vann enska bikarinn með Leicester fyrir tveimur árum en þar áður var hann á mála hjá AS Monaco og Anderlecht.
Tielemans gerir fjögurra ára samning við Villa.
Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Villa fær í sumar en miðvörðurinn Pau Torres er einnig á leið til félagsins.


Mynd: Getty Images



