Chelsea fær Alex Matos og Diego Moreira (Staðfest)

Alex Matos er kominn í unglingaliðið.

Mynd: youtube/google

Diego Moreira gegn Hollandi á EM U21 árs landsliða.

Mynd: Getty Images

Alex Matos er kominn í unglingaliðið.

Mynd: youtube/google
Chelsea er búið að krækja í táninginn Alex Matos sem kemur á frjálsri sölu frá Norwich City.
Matos er 18 ára kantmaður sem verður partur af ógnarsterku U21 liði Chelsea í haust.
Todd Boehly, eigandi Chelsea, ætlar að gera félagið það sterkasta á Englandi og er gott unglingalið mikilvægur liður í því. Hann vill hafa bestu unglingalið heims hjá Chelsea og hefur lagt mikinn metnað í að tryggja að það gerist.
Jim Fraser, yfirmaður þróunarmála á unglingastigi, hefur yfirumsjón með leikmannakaupum og uppbyggingu á U21 liði Chelsea.
Þá er Diego Moreira einnig kominn til Chelsea. Hann kemur úr röðum Benfica og mun spila fyrir U21 liðið í haust.
Moreira er U21 landsliðsmaður hjá Portúgal og gerir fimm ára samning við Chelsea. Hann er vinstri kantmaður að upplagi en getur einnig spilað hægra megin.
Hann verður 19 ára í ágúst og er partur af U21 landsliði Portúgal sem tekur þátt á EM og mætir Englandi í 8-liða úrslitum á morgun.
Moreira hefur verið mikilvægur partur af unglingaliði Benfica og átti tvær stoðsendingar í úrslitaleik UEFA Youth League þar sem Benfica rúllaði yfir Salzburg 6-0.
Diego Moreira has completed a move to Chelsea from Benfica. ??
— Chelsea FC (@ChelseaFC) July 1, 2023

Diego Moreira gegn Hollandi á EM U21 árs landsliða.

Mynd: Getty Images



