Conor Coady kominn til Leicester (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Það er ekkert helgarfrí á skrifstofunni hjá Leicester þar sem félagið var að staðfesta önnur kaup dagsins eftir að hafa krækt í Harry Winks fyrr í dag.
Conor Coady er kominn úr röðum Wolves fyrir um 7,5 milljónir punda, samkvæmt upplýsingum Sky Sports.
Coady gerir þriggja ára samning við Leicester en hann er 30 ára gamall og á tíu landsleiki að baki fyrir England á síðustu þremur árum.
Hann var fastamaður í liði Wolves og spilaði 317 leiki á sjö árum hjá félaginu áður en hann var lánaður til Everton í fyrra. Núna er hann búinn að skipta um félag og hefur samþykkt að fara niður um deild til að hjálpa Leicester að komast aftur upp.
Enzo Maresca, nýr knattspyrnustjóri Leicester, er að reyna að byggja upp lið sem getur komist beint aftur upp í deild þeirra bestu.
Welcome to Lestah, Conor! ???? pic.twitter.com/P7Qu9sykwQ
— Leicester City (@LCFC) July 1, 2023



