Fotbolti.net
01.07.23 - 12:37
Ívan Guðjón Baldursson

Leicester festir kaup á Harry Winks (Staðfest)

Leicester festir kaup á Harry Winks (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester er búið að festa kaup á miðjumanninum Harry Winks, sem gengur til liðs við félagið eftir 203 leiki fyrir Tottenham.

Winks er 27 ára og spilar sem varnarsinnaður miðjumaður. Hann féll úr ítölsku deildinni á láni hjá Sampdoria á síðustu leiktíð.

Winks gerir þriggja ára samning við Leicester og er kaupverðið talið nema um 10 milljónum punda.

Hann er partur af enduruppbyggingunni sem á sér stað hjá Leicester eftir fall úr efstu deild. Félagið er að missa marga af lykilmönnum sínum burt.

James Maddison fór hina leiðina á dögunum og borgaði Tottenham 40 milljónir punda til að kaupa hann.

Winks á 10 landsleiki að baki fyrir England.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.