Marcus Thuram kominn til Inter (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Inter hefur gengið frá félagsskiptum á franska framherjanum Marcus Thuram, sem gerir fimm ára samning við Inter.
Thuram hafnaði meðal annars tækifærinu að ganga í raðir Paris Saint-Germain, AC Milan og RB Leipzig til að fara til Inter, sem tapaði úrslitaleik Meistaradeildarinnar naumlega í byrjun júní.
Thuram er öflugur sóknarleikmaður sem getur spilað á vinstri kanti og í fremstu víglínu.
Hann er 25 ára gamall og með 10 landsleiki að baki fyrir Frakkland. Hann kemur til Inter úr röðum Borussia Mönchengladbach þar sem hann var lykilmaður og kom að 73 mörkum í 134 leikjum.
Thuram er sonur Lilian Thuram, sem gerði garðinn frægan með Parma og Juventus í ítalska boltanum auk þess að vera goðsögn hjá franska landsliðinu þar sem hann vann HM 1998 og EM 2000 með liðinu.
Bienvenue ????????#ForzaInter #WelcomeMarcus
— Inter (@Inter_en) July 1, 2023


Mynd: EPA



