Fotbolti.net
01.07.23 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Marseille kaupir Kondogbia (Staðfest)

Kondogbia í baráttu við Kevin De Bruyne í Meistaradeildinni.

Kondogbia í baráttu við Kevin De Bruyne í Meistaradeildinni.

Canon

Mynd: EPA

Franska félagið Olympique de Marseille er búið að ganga frá kaupum á franska miðjumanninum Geoffrey Kondogbia, sem kemur úr röðum Atletico Madrid.

Kondogbia er fyrsti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Marseille í sumar, eftir að Marcelino tók við þjálfarastarfinu, og borgar franska félagið um 8 milljónir evra fyrir.

Marcelino hefur miklar mætur á Kondogbia eftir að þeir störfuðu saman hjá Valencia frá 2017 til 2019, en þar áður var Kondogbia hjá Inter, Mónakó og Sevilla.

Kondogbia er 30 ára gamall og gerir fjögurra ára samning við Marseille. Hann lék 5 landsleiki fyrir Frakkland áður en hann skipti yfir í Mið-Afríkulýðveldið 2018.

Miðjumaðurinn varnarsinnaði spilaði 93 leiki á þremur árum hjá Atletico.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.