Orsic seldur eftir sex mínútur með Southampton (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Southampton er búið að staðfesta að Mislav Orsic hefur yfirgefið félagið aðeins hálfu ári eftir komu sína.
Orsic var keyptur frá Dinamo Zagreb í janúar fyrir um 6 milljónir evra en fékk ekki að spreyta sig nema í sex mínútur í ensku úrvalsdeildinni.
Hann kom í heildina við sögu í fimm leikjum á hálfu ári hjá Southampton og fer núna til Trabzonspor í Tyrklandi.
Trabzonspor er talið borga á milli 4 og 6 milljónir evra fyrir Orsic, sem er vinstri kantmaður að upplagi en getur einnig leikið hægra megin eða í fremstu víglínu.
Orsic er 30 ára gamall og á 27 landsleiki að baki fyrir sterkt lið Króatíu.



