Fotbolti.net
01.07.23 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Villarreal fær þrjá nýja leikmenn á miðjuna (Staðfest)

Denis Suarez.

Denis Suarez.

Canon

Mynd: EPA

Það hafa verið verulegar breytingar á leikmannahópi Villarreal síðustu daga þar sem félagið er búið að krækja í Denis Suarez á frjálsri sölu frá Celta Vigo.

Suarez átti eitt ár eftir af samningi hjá Celta en fékk að fara frítt eftir rifrildi við forseta félagsins, sem setti leikmanninn í agabann og lánaði svo út til Espanyol í vetur.

Suarez er 29 ára og er sóknarsinnaður miðjumaður að upplagi. Hann hefur meðal annars leikið fyrir Barcelona, Arsenal og Manchester City en hann var hjá Villarreal tímabilið 2015 til 2016 og gengur því í raðir félagsins í annað sinn á ferlinum. Hann er búinn að gera þriggja ára samning við félagið.

Þá er Ramon Terrats einnig genginn til liðs við félagið eftir að hafa verið hjá félaginu á lánssamningi í vetur. Villarreal nýtti sér kaupákvæði í samningi hans og borgar aðeins 2,5 milljónir evra fyrir.

Hinn 22 ára gamli Terrats stóð sig gríðarlega vel á láni hjá Villarreal og hreif stuðningsmenn og þjálfarateymi félagsins. Hann er varnartengiliður að upplagi en getur einnig spilað sem miðvörður eða miðjumaður.

Ekki nóg með það heldur er Santi Comesana einnig kominn til félagsins eftir sjö ár hjá Rayo Vallecano. 

Comesana er 26 ára miðjumaður sem kemur á frjálsri sölu eftir að hafa verið lykilmaður á miðjunni hjá Vallecano.

Það er mikið að gera á skrifstofunni hjá Villarreal þar sem liðið er einnig búið að selja Boulaye Dia og Nicolas Jackson.

Ramon Terrats.

Ramon Terrats.

Canon

Mynd: EPA

Santi Comesana.

Santi Comesana.

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Alaves000
1Real Sociedad2+46
2Athletic000
2Barcelona2+46
3Atletico Madrid2+44
3Atletico Madrid000
4Girona2+14
4Barcelona000
5Betis000
5Levante2+14
6Celta000
6Real Madrid1+33
7Deportivo000
7Eibar1+13
8Leganes1+13
8Elche000
9Espanyol000
9Valencia1+13
10Getafe000
10Betis2-13
11Espanyol101
11Levante000
12Malaga000
12Sevilla101
13Osasuna000
13Athletic101
14Racing Santander000
14Getafe101
15Deportivo2-31
15Rayo Vallecano000
16Celta2-20
16Real Madrid000
17Malaga2-20
17Mallorca38-1042
17Real Sociedad000
18Sevilla000
18Alaves2-30
19Villarreal2-40
19Valencia000
19Girona38-1641
20Villarreal000
20Oviedo38-3429
20Las Palmas2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.