Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 01. ágúst 2021 19:34
Victor Pálsson
Man Utd að fá nýjan Ferdinand
Var frábær.
Var frábær.
Mynd: Getty Images
Manchester United er að tryggja sér leikmann svipaðan og Rio Ferdinand að sögn Patrice Evra, fyrrum leikmanns liðsins.

Ferdinand og Evra léku saman hjá Man Utd í mörg ár en sá fyrrnefndi spilaði í miðverði og var einn sá besti í sinni stöðu.

Nú er Man Utd að fá til sín Raphael Varane frá Real Madrid en sú félagaskipti eru við það að eiga sér stað.

Evra þekkir vel til Varane og segir hann vera svipaðan leikmann og Ferdinand sem eru alls ekki slæmar fréttir fyrir enska félagið.

„Varane minnir mig á Rio Ferdinand. Hann er frábær með boltann, frábær í loftinu. Hann er alhliða varnarmaður," sagði Evra.

„Ég man eftir honum í fyrsta leiknum með landsliðinu og ég var so hrifinn. Hann er rólegur á boltanum og getur skorað."

„Þetta eru topp, topp kaup fyrir Manchester United."
Athugasemdir
banner
banner
banner