Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. ágúst 2022 12:33
Ívan Guðjón Baldursson
Barca ætlar að bíða með að kaupa fleiri leikmenn
Mynd: EPA

Joan Laporta forseti Barcelona segir að félagið ætli að bíða með að kaupa fleiri leikmenn til sín í sumar.


Hann segir að öll einbeiting Börsunga fari nú í að skrá nýja leikmenn sem eru komnir til félagsins í sumar og í að finna lausnir fyrir leikmenn sem eru ekki í framtíðaráformum félagsins.

„Við ætlum aðeins að stoppa á leikmannamarkaðinum. Öll okkar einbeiting fer í að skrá nýju mennina til leiks og finna lausnir fyrir þá leikmenn sem passa ekki í áform félagsins. Eftir það gætum við keypt fleiri leikmenn, Xavi vill styrkja hópinn enn frekar," sagði Laporta.

Barca hefur eytt mest allra félaga í Evrópu í sumar en félög eins og Arsenal, Chelsea, West Ham og PSG fylgja fast á eftir.


Athugasemdir
banner
banner
banner