Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 01. september 2022 22:11
Ívan Guðjón Baldursson
Bednarek til Aston Villa (Staðfest) - Caleta-Car búinn í skoðun
Mynd: EPA

Aston Villa er búið að staðfesta komu miðvarðarins Jan Bednarek á eins árs lánssamningi frá Southampton.


Hinn 26 ára gamli Bednarek á að hjálpa til við að fylla í skarðið sem Diego Carlos skilur eftir í varnarlínunni. Carlos varð dýrasti varnarmaður í sögu Villa þegar félagið keypti hann í sumar en hann meiddist strax og verður frá næstu mánuðina.

Bednarek gat valið á milli Villa og West Ham og er talinn hafa kosið Villa fyrir aukinn spiltíma. Þar mun hann berjast við Tyrone Mings, Calum Chambers og Ezri Konsa um byrjunarliðssæti.

Bednarek hefur spilað yfir 150 leiki fyrir Southampton, hann er fastamaður í landsliði Póllands og á þrjú ár eftir af samningi sínum.

Aston Villa hefði ekki staðfest þessi félagsskipti ef Króatinn Duje Caleta-Car hefði ekki staðist læknisskoðun hjá Southampton rétt í þessu. Southampton mun staðfesta Caleta-Car sem nýjan leikmann innan skamms.


Athugasemdir
banner