Fotbolti.net
01.09.22 - 22:19
Ívan Guðjón Baldursson

Caleta-Car til Southampton (Staðfest)

Caleta-Car til Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Það er nóg um að vera á lokametrum sumargluggans í ensku úrvalsdeildinni þar sem félög eru að reyna að fullkomna leikmannahópana sína fyrir gluggalok.

Southampton er búið að bæta nokkrum leikmönnum við sig í dag og var rétt í þessu að staðfesta félagsskipti króatíska varnarmannsins Duje Caleta-Car frá Marseille.

Caleta-Car er talinn kosta um 10 milljónir punda. Hann er 26 ára gamall og á 129 leiki að baki á fjórum árum hjá Marseille.

Hann tekur stöðu Jan Bednarek í leikmannahópinum og mun berjast við Lyanco, Mohammed Salisu og Armel Bella-Kotchap um byrjunarliðssæti.

Ljóst er að Southampton er að yngja vel upp í leikmannahópinum sínum í tilraun til að byggja spennandi lið fyrir framtíðina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.