Fotbolti.net
01.09.22 - 16:53
Ívan Guðjón Baldursson

Chelsea sendir Baba Rahman til Reading (Staðfest)

Chelsea sendir Baba Rahman til Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Vinstri bakvörðurinn Abdul Rahman Baba, betur þekktur sem Baba Rahman, á ennþá tvö ár eftir af samningi sínum við Chelsea.

Þessi landsliðsmaður Gana hefur verið hjá enska stórveldinu síðustu sjö ár en hefur ekki spilað leik fyrir félagið síðan á sínu fyrsta tímabili þar 2015-16.

Bakvörðurinn var lánaður til Schalke en spilaði afar lítið og hefur einnig farið til Reims, Mallorca og PAOK á síðustu árum. Hann fann aldrei taktinn þar til á síðustu leiktíð þegar hann fór til Reading og spilaði 29 leiki.

Hann vildi ólmur halda aftur til Reading og fékk félagsskiptin í gegn enda telur Thomas Tuchel sig ekki hafa nein not fyrir Rahman.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.