Fotbolti.net
01.09.22 - 19:10
Ívan Guðjón Baldursson

Dendoncker til Aston Villa (Staðfest) - Luiz til Arsenal?

Dendoncker til Aston Villa (Staðfest) - Luiz til Arsenal?
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa er búið að staðfesta kaup á belgíska landsliðsmanninum Leander Dendoncker frá Wolves fyrir 13 milljónir punda.

Þetta gæti losað um félagsskipti Douglas Luiz frá Aston Villa til Arsenal en Villa hafnaði 23 milljónum punda frá toppliði ensku úrvalsdeildarinnar fyrr í dag.

Villa borgar 13 milljónir fyrir Dendoncker sem er 27 ára og hefur spilað rúmlega 150 leiki á fjórum árum hjá Úlfunum.

Dendoncker á 29 landsleiki að baki fyrir Belgíu og endaði í þriðja sæti á HM 2018.

Hann er miðjumaður að upplagi og getur einnig spilað sem miðvörður. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.