Girona eru nýliðar í efstu deild spænska boltans og eru búnir að styrkja leikmannahópinn sinn með mikið af lánsmönnum í sumar.
Þeir voru að staðfesta komu Paulo Gazzaniga á lánssamningi frá Fulham. Gazzaniga er þrítugur og var varamarkvörður Tottenham í fjögur ár áður en hann skipti til Fulham á frjálsri sölu.
Núna hefur Fulham leyft honum að fara á láni til Girona en samningur Gazzaniga rennur út næsta sumar og verður hann því frjáls ferða sinna eftir tímabilið.
Gazzaniga mun berjast við Juan Carlos og Toni Fuidias um markmannsstöðuna. Carlos er 34 ára og hefur verið aðalmarkvörður undanfarin ár á meðan Fuidias er aðeins 21 árs og var kynntur til leiks fyrr í dag.
Fuidias er uppalinn hjá Real Madrid og einn af þremur leikmönnum sem færa sig þaðan og yfir til Girona í sumar. Hann varði mark varaliðs Real á síðustu leiktíð.
Benvingut @GazzanigaPaulo 🧤
— Girona FC (@GironaFC) September 1, 2022
Benvingut @iamtonifuidias 👋
— Girona FC (@GironaFC) September 1, 2022