FH og KA eigast við í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í kvöld en leikurinn fer fram á Kaplakrikavelli klukkan 17:00.
FH-ingar hafa farið nokkuð þægilega leið inn í undanúrslitin og unnið Kára, ÍR og Kórdrengi.
KA-menn mættu vissulega Fram, sem hefur staðið í öllum liðunum í Bestu deildinni, en liðið mætti einnig Ægi og Reyni Sandgerði.
KA er í góðu formi á meðan FH hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel fyrir framan markið. Það verður því spennandi að sjá hvað gerist á Kaplakrikavelli í dag.
Leikur dagsins:
Mjólkurbikar karla
17:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)
Athugasemdir