Daniel James er í læknisskoðun hjá Fulham sem stendur og er líklega á leið til félagsins á láni út tímabilið frá Leeds.
Leeds ætlar að fá Bamba Dieng í hans stað frá Marseille en félagið fær samkeppni frá franska liðinu Nice.
Leeds ætlar að fá Bamba Dieng í hans stað frá Marseille en félagið fær samkeppni frá franska liðinu Nice.
Samkvæmt heiildum The Athletic er Dieng á flugvellinum í Marseille að ákveða sig hvort hann ætli að fara til Leeds eða Nice.
Leeds náði samkomulagi við Marseille um kaupverð fyrr í dag eftir að félagið náði ekki að fá Cody Gakpo frá PSV. Búist var við því að Dieng kæmi með flugi frá Frakklandi í kjölfarið en hann er enn í Frakklandi.
Nice reynir núna að sannfæra hann um að ganga í sínar raðir og Marseille bíður eftir ákvörðun frá senegalska sóknarmanninum. Kaupverðið er tíu milljónir evra.
Athugasemdir