Fotbolti.net
01.09.22 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Sergino Dest til AC Milan með kaupmöguleika (Staðfest)

Dest skoraði 3 mörk og gaf 5 stoðsendingar í 72 leikjum.

Dest skoraði 3 mörk og gaf 5 stoðsendingar í 72 leikjum.

Canon

Mynd: EPA

AC Milan er búið að staðfesta komu Sergino Dest á eins árs lánssamning með kaupmöguleika.

Dest kemur á láni frá Barcelona þar sem hann hefur spilað 72 leiki á tveimur árum án þess að takast að hrífa þjálfarateymið nógu mikið.

Kaupmöguleikinn er talinn nema um 20 milljónum evra og er Dest fenginn til að fylla í skarðið fyrir Alessandro Florenzi sem meiddist á dögunum.

Dest mun því berjast við Davide Calabria um byrjunarliðsstöðu í hægri bakvarðarstöðunni. Dest er 21 árs og með 17 landsleiki að baki fyrir Bandaríkin.

Barca fær Hector Bellerin til að fylla í skarðið sem Dest skilur eftir. Bellerin mun berjast við Sergi Roberto um byrjunarliðssæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.