Fotbolti.net
01.09.22 - 20:18
Ívan Guðjón Baldursson

Southampton fær Maitland-Niles frá Arsenal (Staðfest)

Southampton fær Maitland-Niles frá Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Southampton er búið að staðfesta komu Ainsley Maitland-Niles á eins árs lánssamningi frá Arsenal með kaupmöguleika.

Maitland-Niles er 25 ára og er gríðarlega fjölhæfur leikmaður. Hann spilaði 132 leiki í hinum ýmsu stöðum með Arsenal en hefur einnig spilað á lánssamningum hjá Ipswich, West Brom og síðast Roma.

Hann er vængbakvörður eða kantmaður að upplagi en hefur spilað í nánast öllum stöðum vallarins nema sem fremsti sóknarmaður, miðvörður eða markvörður.

Maitland-Niles á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal en félagið hefur möguleika á að framlengja um eitt ár.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.