Southampton fær þriðja leikmanninn frá Man City (Staðfest)

Samuel Edozie er 19 ára gamall með leiki að baki fyrir yngri landslið Englands.

Mynd: Getty Images

Samuel Edozie er 19 ára gamall með leiki að baki fyrir yngri landslið Englands.

Mynd: Getty Images
Southampton er að fara mikinn á lokadegi sumargluggans og var að staðfesta komu Sam Edozie frá Manchester City.
Edozie er þriðji ungi leikmaðurinn sem Southampton kaupir af Man City í sumar eftir Gavin Bazunu og Romeo Lavia sem hafa verið að standa sig vel á upphafi tímabils.
Hann er jafnframt annar nýi leikmaðurinn sem Southampton staðfestir í dag eftir komu Ainsley Maitland-Niles en það er að minnsta kosti einn á leiðinni til viðbótar.
Southampton borgar um 10 milljónir punda fyrir Edozie sem spilar á vinstri kanti. Félagið er þá einnig að reyna að krækja í Juan Larios frá City.
Joe Shields er yfirmaður leikmannamála hjá Southampton og starfar þar samhliða Matt Crocker yfirmanni fótboltamála. Shields starfaði áður sem yfirmaður leikmannamála hjá akademíunni hjá City og þekkir því vel til þessara ungu leikmanna.
Fan-Dab-EDOZIE! ✍️ pic.twitter.com/TyZvylYlWg
— Southampton FC (@SouthamptonFC) September 1, 2022






