Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 01. september 2022 22:03
Ívan Guðjón Baldursson
Tahith Chong til Birmingham (Staðfest)
Mynd: Getty Images

Birmingham City FC er búið að kaupa Tahith Chong af Manchester United eftir að kantmaðurinn varði síðustu leiktíð á lánssamningi hjá félaginu.


Chong er annar leikmaður Man Utd sem gengur í raðir Birmingham á nokkrum dögum undir lok sumargluggans eftir að félagið krækti í Hannibal Mejbri á lánssamningi.

Chong er 23 ára og kom að fjórum mörkum í 20 leikjum er Birmingham endaði skammt fyrir ofan fallsvæðið.

Kaupverðið er óuppgefið en kantmaðurinn skrifar undir fjögurra ára samning við Birmingham.

Chong var mikilvægur hlekkur í yngri landsliðum Hollands en á eftir að taka stökkið upp í A-landsliðið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner