Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. nóvember 2019 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Kolasinac: Mesut Özil tekur aukaæfingar
Mynd: Getty Images
Sead Kolasinac og Mesut Özil leika saman hjá Arsenal og eru góðir félagar. Özil, sem var eitt sinn álitinn meðal bestu knattspyrnumanna heims, er búinn að missa sæti sitt í liðinu og viðurkennir að Kolasinac og félagi sinn sé óánægður með stöðu mála.

Özil spilaði stærstan hluta leiks í 5-5 jafntefli gegn Liverpool í vikunni og átti fínan leik áður en honum var skipt af velli. Özil er 31 árs og er launahæstur í hópi Arsenal.

„Mesut er Mesut, hann er ótrúlegur leikmaður og það vita allir hvaða gæðum hann býr yfir. Hann er einn af bestu leikmönnum Evrópu og getur hjálpað Arsenal mikið þegar hann er uppá sitt bestam" sagði Kolasinac.

„Mesut er óánægður með stöðu mála sem stendur en maður sér það ekki á æfingum. Hann hefur mikinn metnað og er að leggja ótrúlega mikið á sig á æfingasvæðinu, hann tekur aukaæfingar bara til að vera í fullkomnu líkamlegu ástandi."

Özil spilaði 24 deildarleiki undir stjórn Emery á síðustu leiktíð en á þessari leiktíð hefur hann aðeins spilað einn leik, í 2-2 jafntefli gegn Watford.
Athugasemdir
banner
banner
banner