Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 01. nóvember 2019 22:15
Ívan Guðjón Baldursson
Sveinn Aron byrjaði - Diego enn utan hóps
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Sveinn Aron Guðjohnsen var í byrjunarliði Spezia er liðið fékk Chievo í heimsókn í ítölsku B-deildinni í kvöld.

Sveinn Aron fékk ekki tækifæri í deildinni fyrr en eftir síðasta landsleikjahlé. Hann kom þá inn af bekknum 1-0 undir á útivelli gegn Pescara og sneri leiknum við með marki og stoðsendingu.

Hann byrjaði svo í 2-0 sigri gegn Juve Stabia en var hvíldur í síðasta leik sem var 1-1 jafntefli á útivelli gegn Empoli. Í kvöld tókst honum ekki að skora frekar en öðrum leikmönnum Spezia enda lauk leiknum með markalausu jafntefli.

Spezia byrjaði tímabilið hrikalega en er komið úr fallsæti, með 12 stig eftir 11 umferðir.

Spezia 0 - 0 Chievo

Í spænsku B-deildinni er Diego Jóhannesson Pando áfram utan hóps hjá Real Oviedo.

Hann virðist ekki vera í áformum þjálfarans en gengi liðsins hefur ekki verið gott á leiktíðinni. Oviedo er aðeins með 14 stig eftir 14 umferðir, einu stigi fyrir ofan fallsvæðið.

Diego var fastamaður í byrjunarliðinu síðustu tvö tímabil en hefur aðeins spilað fimm leiki í haust. Hann kom við sögu í fimm af fyrstu sex leikjum tímabilsins og hefur ekik verið í hóp síðan Oviedo gerði 1-1 jafntefli við Extremadura 19. september.

Í kvöld gerði Oviedo markalaust jafntefli við Almeria.

Real Oviedo 0 - 0 Almeria
Athugasemdir
banner
banner
banner