Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   sun 01. desember 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æfingaleikir: Afturelding skoraði níu - Markalaust í Kórnum
Andri gerði tvö af mörkum Aftureldingar.
Andri gerði tvö af mörkum Aftureldingar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding valtaði yfir Víði Garði í æfingaleik á föstudaginn. Afturelding skoraði níu mörk í leiknum.

Afturelding er í Inkasso-deildinni og Víðir í 2. deild karla.

Fjölnir og HK, tvö lið úr Pepsi Max-deildinni, gerðu markalaust jafntefli í Kórnum í gær.

Þá mættust tvö Hafnarfjarðarlið úr 4. deild, ÍH og KÁ. Þar vann síðarnefnda liðið stórsigur eftir að staðan hafði verið jöfn í hálfleik.

HK 0 - 0 Fjölnir

Afturelding 9 - 0 Víðir
Mörk Aftureldingar: Andri Freyr Jónasson 2, Jason Daði Svanþórsson, Valgeir Árni Svansson, Jökull Jörvar Þórhallsson, Georg Bjarnason, Kári Steinn Hlífarsson, Logi Már Magnússon og Aron Daði Ásbjörnsson.

KÁ 7 - 1 ÍH
Mörk KÁ: Carlos Magnús Rabelo 3, Gunnar Már 2, Ólafur Sveinmar Guðmundsson, Fannar Óli Friðleifsson.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner