Fotbolti.net
01.12.20 - 07:30
Victor Pálsson

Telur að Jota sé enn varamaður í augum Klopp

Telur að Jota sé enn varamaður í augum Klopp
Canon

Mynd: Getty Images

Steve McManaman, fyrrum leikmaður Liverpool, telur að Jota sé ekki búinn að vinna sér inn byrjunarliðssæti hjá félaginu.
Portúgalinn hefur byrjað virkilega vel á Anfield en hann kom til félagsins frá Wolves í sumar.

Talað er um að Roberto Firmino gæti farið á bekkinn eftir góðar frammistöður Jota en McManaman er ekki sammála því.

„Ég held að Jurgen sé hrifinn af því að geta enn treyst á Bobby Firmino, Mo Salah og Sadio Mane að svo stöddu," sagði McManaman.

„Ég held að Jota sé enn maðurinn sem þarf að sitja eftir. Ef hann heldur áfram uppteknuim hætti þá gæti það breyst en Klopp vann deildina með hina þrjá og treystir þeim fullkomlega."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.