Everton og Liverpool eigast við í nágrannaslag á Goodison Park í 14. umferð ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 20:15 í kvöld. Joel Matip kemur inn í vörnina í stað Ibrahima Konate.
Liverpool vann öruggan 4-0 sigur á Southampton um helgina og heldur Jürgen Klopp sig við nánast sama lið fyrir utan að Konate kemur á bekkin og Matip kemur við hlið Virgil van Dijk.
Rafael Benitez gerir tvær breytingar á liði Everton en Richarlison og Demerai Gray koma inn í liðið á kostnað Alex Iwobi og Anthony Gordon.
Everton: Pickford, Coleman, Keane, Godfrey, Digne, Allan, Doucoure, Gray, Townsend, Richarlison, Rondo
Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Matip, Van Dijk, Robertson, Henderson, Fabinho, Thiago, Salah, Jota, Mane
Þá mætast Aston Villa og Manchester City á Villa Park en Jack Grealish er á bekknum gegn sínum gömlu félögum.
Aston Villa: Martinez, Cash, Mings, Konsa, Targett, McGinn, Luiz, Nakamba, Buendia, Bailey, Watkins.
Man City: Ederson, Cancelo, Dias, Ake, Zinchenko, Fernandinho, Rodrigo, Bernardo Silva, Mahrez, Gabriel Jesus, Sterling
Athugasemdir