Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 02. febrúar 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æfingaleikir: Fylkir skoraði sjö og Stjarnan gerði sex
Harley Willard átti stórleik fyrir Fylki.
Harley Willard átti stórleik fyrir Fylki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir og Fram áttust við í æfingaleik á Würth-vellinum í Árbæ í gær og endaði leikurinn með stórsigri Fylkismanna.

Fylkir leikur í Pepsi Max-deildinni, en Fram er í 1. deild. Harley Willard, sem kom til Fylkis frá Víkingi Ólafsvík eftir síðustu leiktíð, gerði þrennu í leiknum. Valdimar Þór Ingimundarson skoraði tvö og voru Arnór Gauti Ragnarsson og Orri Sveinn Stefánsson einnig á skotskónum.

Hrafnkell Helgi Helgason, formaður meistaraflokksráðs Fylkis, segir frá úrslitunum á Twtter-síðu sinni.

Þá áttust kvennalið Stjörnunnar og Keflavíkur við í æfingaleik í síðustu viku. Leikinn vann Stjarnan með sex mörkum gegn engu. Shameeka Fishley skoraði þrennu fyrir Stjörnuna, Aníta Ýr Þorvaldsdóttir skoraði tvö og var Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir með eitt mark.

Stjarnan er í Pepsi Max-deildinni, en Keflavík féll úr Pepsi Max-deildinni í fyrra.

Fylkir 7 - 0 Fram
Harley Willard 3, Valdimar Þór Ingimundarson 2, Arnór Gauti Ragnarsson og Orri Sveinn Stefánsson.

Stjarnan 6 - 0 Keflavík
Mörk Stjörnunnar: Shameeka Fishley 3, Aníta Ýr Þorvaldsdóttir 2 og Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner