Fotbolti.net
02.02.22 - 11:03
Elvar Geir Magnússon

Líklegt byrjunarlið Barcelona eftir janúargluggann

Xavi heldur um stjórnartaumana hjá Barcelona.

Xavi heldur um stjórnartaumana hjá Barcelona.

Canon

Mynd: EPA

Janúarglugginn hjá Xavi og félögum í Barcelona var afskaplega tíðindamikill en félagið fékk til sín fjóra leikmenn.

Bakvörðurinn reynslumikli Dani Alves er mættur aftur í treyju Barca en hann verður 39 ára á árinu og kom á frjálsri sölu. Sóknarleikmaðurinn Ferran Torres var keyptur frá Manchester City á um 50 milljónir punda.
Í lok gluggans þá krækti Barcelona svo í Adama Traore frá Wolves og Pierre-Emerick Aubameyang frá Arsenal en sá síðarnefndi hefur ekki verið formlega kynntur þó hann sé byrjaður að æfa með liðinu.

Mirror setti saman líklegt byrjunarlið Börsunga en þar vekur athygli að hollenska stjarnan Frenkie de Jong er ekki í liðinu. Ungstirnin Pedri og Gavi eru hinsvegar á miðjunni.

Eftir kaupin á nýjum sóknarleikmönnum er ekki pláss fyrir Memphis Depay, Martin Braithwaite, Ousmane Dembele (sem verður samningslaus í sumar) og Luuk de Jong.

Barcelona er í fimmta sæti La Liga en fimm efstu liðin komast í Meistaradeildina. Börsungar féllu niður í Evrópudeildina þar sem þeir komust ekki áfram upp úr sínum riðli í Meistaradeildinni.
Verður byrjunarlið Barcelona svona?

Verður byrjunarlið Barcelona svona?

Canon

Mynd: Mirror

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.