Freyr: Sama hvernig frammistaðan var þá læra þær mikið af þessu
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska kvennalandsliðið þurfti að sætta sig við tap gegn Japan á Algarve Cup fyrr í dag. Freyr Alexandersson þjálfari liðsins var ósáttur með úrslitin en segist taka helling úr leiknum.
<i>„Við vorum með mikið breytt lið og mikið af ungum leikmönnum sem fengu stórt hlutverk og þær munu taka þennan leik með sér í reynslubankann. Sama hvernig frammistaða þeirra var þá geta þær lært mikið af þessum leik.\"
„Þetta var bæði jákvætt og neikvætt. Við vorum í vandræðum í fyrri hálfleik. Svo var frábær seinni hálfleikur, við tókum okkur á, leikmenn fóru úr skelinni, hristu af sér slenið og keyrðu bara á þetta.\"</i>
Japanir leiddu 1-0 í hálfleik en Glódís Perla Viggósdóttir jafnaði metinn fyrir Ísland á 75. mínútu. Japanir skoruðu svo sigurmarkið eftir hornspyrnu undir lok leiksins.
<i>„Það er náttúrulega leiðinlegt að tapa. Fengum á okkur mark eftir horn á síðustu mínútunum sem á bara ekki að gerast. En við lærum af þessu.\"</i>
Fanndís Friðriksdóttir hefur ekkert spilað í fyrstu tveimur leikjum liðsins á mótinu en Freyr á von á því að hún verði klár í leikinn gegn Hollandi.
<i>„Það eru jákvæðar fréttir af Fanndísi. Hún er á batavegi og við reiknum með því að hún geti tekið þátt í leiknum gegn Hollandi á mánudaginn.\"</i>