Elmar Atli: Við megum ekki láta það gerast aftur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vestri tók á móti Qarabag í fyrsta heimaleik liðsins í Evrópukeppni á Avis-vellinum fyrr í kvöld. Leikurinn endaði 3-0 fyrir Qarabag og einvígið 6-0 samtals.
Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Elmar Atla Garðarsson fyrirliða Vestra um leikinn og framhaldið.
„Ég er stoltur af strákunum, við lögðum allt í þetta. Þetta var alltaf að fara að vera helvíti erfitt en heilt yfir var þetta ágætis leikur hjá okkur. Við náðum að halda betur í boltann eins og við ætluðum að gera. Það hefði verið gaman að pota inn einu marki en það datt ekki í dag". Sagði Elmar Atli eftir seinni leikinn í einvígi Vestra og Qarabag.
Í fyrri leik liðanna voru Vestri í erfiðleikum fram á við. Í kvöld var frammistaða liðsins ofar á vellinum mun betri og liðið fékk flott færi og komst í góðar stöður.
„Planið fyrir leik var að halda aðeins betur í boltann og gera betur í okkar stöðum fram á við. Það var góð orka hjá okkur í dag, miðað við það sem við höfum þurft að fara í gegnum síðustu vikuna. Kúdos á strákana, þeir voru ógeðslega flottir í dag".
Daniel Badu þjálfari Vestra gerði 7 breytingar á liðinu eftir síðasta leik liðanna í Bakú. Þar á meðal voru tveir leikmenn fæddir árið 2009 í byrjunarliði Vestra í kvöld. Hvernig fannst þér leikmennirnir sem komu inn í liðið spila?
„Bæði Albert og Marínó voru geðveikir í dag, þeir komu ógeðslega flott inn í þetta. Þeir sama hafa spilað minna voru hrikalega flottir, ég gæti ekki verið ánægðari".
Vestri mætir HK í Lengjudeildinni á mánudaginn næsta. Liðið spilaði við Fylki á síðasta mánudag og fengu 5-2 skell á heimavelli þar sem augljós þreytumerki voru á liðinu. Heldur þú að það verði svipað upp á teningnum gegn HK, kannski þreyta?
„Nei nei, við megum ekki láta það sem kom fyrir á móti Fylki gerast aftur gegn HK. Við náum að "rótera" og hvíla menn svo ég býst ekki við örðu en að við verðum klárir á mánudaginn".
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.





