Byrjunarliðið kom Samma á óvart - „Ég var pínu hræddur"


Mynd: Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Vestri féll úr leik í Evrópudeildinni í kvöld eftir að hafa tapað 6-0 samanlagt fyrir Qarabag. Þeir munu hins vegar fá allavega eitt Evrópu einvígi í viðbót þar sem þeir mæta RFS frá Lettlandi í Sambandsdeildinni í næstu viki. Samúel Samúelsson formaður meistaraflokksráðs Vestra var stoltur af sínum mönnum.
„Ég er bara gríðarlega stoltur af mínum mönnum. Menn héldu að þetta yrði stórt verkefni, sem þetta klárlega var. Ég var pínu hræddur um það að úrslitin gætu verið stærri en þau voru. Þannig ég er bara gríðarlega stoltur af liðinu," sagði Samúel.
Samúel hefur unnið lengi fyrir félagið, og fékk í fyrsta skiptið í kvöld að sjá liðið spila í Evrópukeppni á íslenskri grundu.
„Maður er bara stoltur af félaginu, menn eru búnir að vinna vel. Með því að vinna bikarinn í fyrra, unnum við okkur rétt í þessa keppni. Þannig maður er bara gríðarlega stoltur," sagði Samúel.
Byrjunarliðið í kvöld var töluvert breytt frá fyrri leiknum, þar sem ungir leikmenn fengu tækifæri og við sáum töluvert af uppöldum leikmönnum í liðinu.
„Ég verð að viðurkenna það, að þegar ég sá byrjunarliðið í dag kom það mér pínu í opna skjöldu, ég var pínu hræddur. En þessir strákar leggja bara allt í þetta, líf og sál. Bæði Albert og Marinó, af því þú nefnir þessa ungu stráka, sem hafa lítið spilað fyrir okkur í sumar. Þeir stóðu sig báðir frábærlega. Albert hafsent í dag, hann var bara eins og þrítugur karlmaður, hokinn af reynslu og steig ekki feilspor. Þannig framtíðin er björt fyrir þessa drengi,"
RFS frá Riga er andstæðingurinn í Sambandsdeildinni eftir viku. Það er vissulega minna lið en Qarabag, en Vestri þó ennþá ólíklegri aðilinn í því einvígi.
„Við erum í þessu til að reyna að vinna, og við verðum að fara kokhraustir þarna út og standa okkur. Ég hef fulla trú á því að liðið muni gera það. Auðvitað fyrir fram, eins og í þessu einvígi eru möguleikarnir ekki taldir miklir. Við förum og gerum okkar besta, og látum Riga menn hafa fyrir hlutunum. Það er klárt," sagði Samúel.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.





