Magnús Már: Ef að Mosfellingar eru á Íslandi þá er skyldumæting

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Sáttur með stigin fyrst og fremst,“ sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, eftir 3-2 sigur á Leikni í Mosfellsbænum í kvöld
„Flott liðsheildar frammistaða, við vorum grimmir, kannski óþarflega tæpt þarna í lokin við hefðum viljað sigla þessu öruggara í höfn en bara hrós á strákana fyrir að ná í þessu þrjú stig. Flott mörk sem við skorum og bara fyrst og fremst góð liðsheild,“ hélt hann svo áfram.
Eins og Maggi kemur inn á sjálfur varð leikurinn óþarflega spennandi undir lokin og aðspurður hvort það hafi verið svekkjandi að vinna leikinn ekki stærra og hafa þetta aðeins öruggara þegar lokaflautið gall segir hann:
„Já, eins marks forysta er alltaf óþægilegt og tæpt, klárlega. Þeir náttúrulega minnka muninn þegar það eru nokkrar mínútur eftir og stressandi mínútur í lokin en já, ég er sammála, mér fannst við vera heilt yfir betri og kannski skapa okkur aðeins fleiri færi og stöður. Bara ánægður með mörkin sem við skorum og margt í spilamennskunni mjög gott.“
Næsti leikur Aftureldingar eru undanúrslit í Mjólkurbikarnum gegn Fylki en nú má loksins byrja að hugsa almennilega um þann leik og hlakka til hans.
„Já, mikið hrós á strákana fyrir að hafa náð að einbeita sér, það eru komnir sex leikir núna á milli bikarleikja hjá okkur. Bikarinn kemur bara einu sinni í mánuði og við byrjuðum í mars í keppninni og svo er þetta bara einn leikur í mánuði þannig að þetta hefur verið smá kúnst að, stór leikur eins og þú segir, að hafa augu á því sem við erum að gera í deildinni. Ég bara skora á Mosfellinga, ef að Mosfellingar eru staddir á Íslandi í rauninni þá er skyldumæting í Árbæinn, ég gef engan afslátt á því.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.





