Yfirgefur Evrópumeistarana í sumar

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Senegalski vængmaðurinn Ibrahima Mbaye mun yfirgefa Evrópumeistara Paris Saint-Germain í sumar.
Mbaye er 18 ára og talinn einn efnilegasti sóknarmaður heims.
Hann lék 23 leiki og skoraði þrjú mörk á síðasta tímabili þegar PSG varð franskur meistari og vann Meistaradeild Evrópu.
Vængmaðurinn óttast að tækifærin verði af skornum skammti hjá PSG á næstu árum vegna mikillar samkeppni í leikmannahópnum. Hann vill því leita annað og fá stærra hlutverk.
Mbaye hefur ráðið Jorge Mendes, einn öflugasta umboðsmann heims, sem er þegar farinn að ræða við félög í ensku úrvalsdeildinni og Þýskalandi.
Fjölmörg félög hafa sýnt Mbaye áhuga. Hann er fæddur og uppalinn í Frakklandi en ákvað á síðasta ári að leika fyrir senegalska landsliðið.
Mbaye hefur skorað fjögur mörk í fimmtán landsleikjum fyrir Senegal, þar af eitt á heimsmeistaramótinu. Það kom einmitt gegn Frakklandi í riðlakeppninni.