Fotbolti.net
02.04.21 - 06:00
Victor Pálsson

Cecilía lék sinn fyrsta leik í sigri - Sveindís kom inná

Cecilía lék sinn fyrsta leik í sigri - Sveindís kom inná
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kvennaboltinn
Kvennalið Örebro frá Svíþjóð lagði Kristianstads í æfingaleik í gær en leikurinn fór fram um kvöldið.
Tvær íslenskar stelpur léku með Örebro í þessum 2-1 sigri eða þær Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Berglind Rós Ágústsdóttir.

Cecilía var að leika sinn fyrsta leik fyrir Örebro og spilaði seinni hálfleikinn í marki liðsins. Berglind lék á meðan allan leikinn í vörninni.

Hin 19 ára gamla Sveindís Jane Jónsdóttir kom þá inná hjá Kristianstads en hún er þar í láni frá Wolfsburg.

Sveindís lék með Breiðabliki árið 2020 og skoraði þá 14 mörk í 15 leikjum áður en hún gekk í raðir Wolfsburg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.