Erlendur Eiríksson, einn besti dómari landsins, var í viðtali í upphitunarþætti Fótbolta.net fyrir Pepsi-deildina.
Dómarar deildarinnar munu nota spreyið fræga sem hefur gert lukku í alþjóðlegri dómgæslu en það er nýjung hér á landi.
Dómarar deildarinnar munu nota spreyið fræga sem hefur gert lukku í alþjóðlegri dómgæslu en það er nýjung hér á landi.
Erlendur dæmir á morgun leik Keflavíkur og Víkings en hann vonast til þess að lenda ekki í sömu vandræðum og kollegi hans á Englandi, Jon Moss.
Mynd af Moss má sjá hér að neðan en hann lenti í því að spreybrúsinn stóð eitthvað á sér og endaði með það með því að hann spreyjaði í andlitið á sér.
Smelltu hér til að hlusta á þáttinn í heild sinni
Athugasemdir