Fotbolti.net
02.05.21 - 17:10
Victor Pálsson

Aguero sáttur við það hlutverk sem hann fær

Aguero sáttur við það hlutverk sem hann fær
Canon

Mynd: Getty Images

Sergio Aguero, leikmaður Manchester City, er tilbúinn í orustuna gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í vikunni.
Aguero hefur verið meiddur í síðustu leikjum en skoraði svo í 2-0 sigri Man City á Crystal Palace í gær.

Tímabilið hefur verið brösugt fyrir Aguero vegna meiðsla en hann er á förum frá enska félaginu í sumar.

Argentínumaðurinn er tilbúinn í slaginn gegn PSG á þriðjudaginn en sættir sig við það hlutverk sem hann fær.

„Ég er alltaf tilbúinn. Mér líður vel og líka í hnénu. Ég bíð bara eftir tækifærinu að spila, eins og í dag," sagði Aguero.

„Ef ég spila ekki þá skiptir það engu máli. Ég vil vera með liðsfélögunun. Auðvitað vilja allir leikmenn spila en við sjáum til."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.