02.05.22 - 21:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldo við myndavélina: Ég er ekki búinn

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo er orðinn 37 ára gamall, en hann kveðst ekki vera búinn.
Ronaldo skoraði af vítapunktinum þegar Manchester United vann 3-0 sigur gegn Brentford í síðasta heimaleik sínum á tímabilinu á þessu mánudagskvöldi.
Ronaldo er búinn að skora 24 mörk á tímabilinu, sem er alls ekki slæmt fyrir mann á hans aldri. Það reyndar bara ekki slæmt fyrir neinn.
En samt sem áður hafa verið gagnrýnisraddir á lofti um vinnuframlag og annað. Talað hefur verið um að hann gæti verið á förum þegar Erik ten Hag tekur við, en Ronaldo var með skýr skilaboð eftir leikinn í kvöld.
„Ég er ekki búinn," sagði Ronaldo við myndavélina.
Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Man Utd.

-18 goals in the Premier League
— The CR7 Timeline. (@TimelineCR7) May 2, 2022
-24 goals in All Competitions
No other player in the world can score as many goals as Cristiano Ronaldo has for this United team 🐐 pic.twitter.com/FWtcYElw6F