KA hefur fengið þau tíðindi staðfest að liðið mun sitja hjá í 1. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni. Bikarmeistarar síðasta árs sitja hjá en Víkingur og Valur fara í 1. umferðina. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ræddi við Fótbolta.net.
„Það verður dregið í 1. umferðina 17. júní og aðra umferðina 18. júní. Það er orðið staðfest að við förum inn í 2. umferðina, sitjum hjá í 1. umferðinni. Það er verið að 're-seeda' núna þegar Rússarnir eru ekki með og KA situr hjá í 1. umferð. Víkingur og Valur verða í 1. umferðinni, en við förum beint í 2. umferð," segir Sævar.
Evrópusætið sem fylgir bikarmeistaratitlinum er verðmætara en sætið sem fæst með því að enda í 2. sæti Bestu deildarinnar.
„Þetta var eitthvað sem við sem erum að nördast í þessu vorum að gera okkur vonir um og nú er það orðið staðfest. Í einhverjum tilfellum, þegar lið vinna tvöfalt, þá færist bikarmeistarinn í næstu þjóð fyrir neðan á listanum upp um flokk. Við erum búnir að fá það staðfest að við verðum ekki í pottinum 17. júní, heldur bara í pottinum 18. júní."
„Það er náttúrulega stórt fyrir okkur, félögin fá ákveðna upphæð eftir því hvenær þau detta út úr keppninni. Upphæðin er 150 þúsund evrur fyrir umferð eitt og 350 þúsund evrur fyrir umferð tvö. Við erum komnir í gegnum fyrstu umferðina og spörum okkur tvo leiki. Það eru góðar fréttir fyrir okkur."
Það eru framkvæmdir í gangi á KA svæðinu, þar er búið að leggja gervigras á nýjan keppnisvöll og þar verður einnig stúka. KA menn búast ekki við því að spila á þeim velli fyrr en í fyrsta lagi í lokaleikjum þessa árs, en horft er á að byrja næsta tímabil á þeim velli.
Vongóðir um að spila á Greifavellinum
KA hefur þá sótt um undanþágu frá UEFA til þess að fá að spila heimaleik sinn í 2. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni á Greifavellinum.
„Þetta lítur ágætlega út, það var maður frá UEFA í úttekt hjá okkur í síðustu viku og svo kemur aðili frá FIFA seinni partinn í þessari viku til að taka út völlinn okkar, gervigrasið. Ég vona að það fari í gegn. Þá erum við að gera okkur vonir um að fá undanþágu til að spila á vellinum okkar í Sambandsdeildinni. Við þurftum að gera ýmislegt, klæða t.d. stúkuna til að uppfylla ákveðin skilyrði. Okkur tókst það og bíðum eftir endanlegri skýrslu. Við fengum þau svör að þetta liti fínt út og væru allar líkur á að færi í gegn, en endanleg svör fáum við í vikulok frá UEFA. Við erum vongóðir. Það var mjög strangt þegar við spiluðum fyrir tveimur árum að völlurinn þyrfti að taka að lágmarki þúsund manns, en núna er hægt að fá undanþágu fyrir 500 manna stúkur í fyrstu tveimur umferðunum."
„Ef við myndum svo komast áfram í þriðju umferðina, þá yrði það bara Laugardalsvöllur."
Skoðað að spila á Þórsvelli
Hvert er plan B, það heyrðist í vetur að KA hefði kannað möguleikann á því að spila á heimavelli Þórs, grasvellinum í Þorpinu. Er það rétt?
„Já, það var alveg skoðað, en plan B er Framvöllur, Lambhagavöllur í Úlfarsárdal. Við erum búnir að skila því inn. Plan A er að spila á Greifavellinum."
„Þetta kom upp í okkar umræðu vegna þess að okkur langar að spila á Akureyri, en það fór ekki lengra en að vera möguleiki sem við veltum upp (að spila á Þórsvelli). Eftir að hafa rætt það innanhúss hjá okkur, þá mátum við möguleikann okkar á gervigrasi vera meiri og þá varð það raunin."
„Okkur langar að eiga heimaleik fyrir allt hérna í kringum okkur, fá liðið til að koma hérna og skilja eftir smá pening í samfélaginu okkar með gistingu, mat og öðru."
Sævar segir að KA menn geri ráð fyrir að byrja á nýja vellinum næsta vor. „Það væri einhver möguleiki með eitthvað í haust, en við vonum að þetta vinnist vel í sumar og í vetur og við byrjum næsta vor á nýjum keppnisvelli."
Athugasemdir